Sarpur

Author Archive

Gullkorn

júní 18, 2013 Skrá ummæli

Pétur þurfti að fara til læknis í dag og á biðstofunni er stórt fiskabúr sem er mjög vinsælt að skoða.   Eftir læknisheimsóknina vildi Pétur fara aftur á biðstofuna að skoða fiskana og ég leyfði honum það.   Þegar ég var búin að fá nóg byrjaði ég að reyna að fá hann með mér út.

Ég:  Jæja, eigum við að fara í strætó

Pétur:  Nei, skoða fiskana

Ég:  Eigum við að koma út

Pétur:  Nei, skoða fiskana

Ég:  Eigum við að fara í apótekið.

Pétur:  (stekkur niður) JÁ!

Ég var ekki alveg að fatta af hverju hann var svona rosalega til í að fara í apótekið, en við gengum af stað inn ganginn og á leiðinni leit hann á mig og sagði spenntur:  ”Mamma, við fara að sjá apaketti!”      Apótek – apaköttur, póteitó – pótató

Categories: Uncategorized

Skemmtileg helgi

júní 18, 2013 Skrá ummæli

Þá er kominn tími á að bretta upp ermarnar og endurvekja þetta blogg.   Nú er sumarið komið hjá okkur, í síðustu viku voru skólaslit hjá Sólveigu.  Það er alltaf mikið fjör, byrjar með söng og ræðuhöldum og að því loknu er sumarhátíð.   Á sumarhátíðinni er hver bekkur með veitingasölu og afþreyingu, í ár var Sólveigar bekkur með kókosbollusölu og svokallaðan “strutfotboll”, hér má einmitt sjá Sólveigu og vinkonu hennar keppa í strutfotboll.

 

Síðastliðinn laugardag var svo mikið fjör hjá okkur.  Byrjaði með síðasta fótboltaleik Sólveigar þetta tímabilið, í þetta sinn prófaði hún að vera í marki í fyrri hálfleik og það gekk vel, hún hélt hreinu eins og fagmennirnir orða það.   Liðið hennar vann svo leikinn 6-2 og var það fín upphitun fyrir restina af deginum.  Eftir leikinn brunuðum við svo heim og hófum undirbúning fyrir 8 ára afmælisveislu aldarinnar.   Sólveig bauð 10 vinkonum sínum í afmæli og var mikið fjör, við fengum frábært veður þannig að þær gátu leikið sér í  garðinum okkar, hoppað á trampólíni, rólað og farið í handahlaup.   Svo var dansgólf á pallinum og dekkað borð í sólskálanum, frábært partýhús sem við búum í.   Við vorum allavega alsæl eftir veisluna þar sem þetta gekk mjög vel.

Categories: Fréttir

Performerinn

maí 2, 2013 1 comment

Já, jólin eru víst löngu búin og páskarnir meira að segja líka.    Það hefur verið lítið um stórviðburði hjá okkur eftir áramótin, síðastliðnir mánuðir hafa einkennst af miklum kulda og við fjölskyldan höfum skipst á að vera lasin, einn til tveir í einu nánast stöðugt frá janúarlokum.  Nú er hins vegar betri tíð með blóm í haga, snjórinn farinn og hitastigið sígur hægt og rólega upp á við.

Sólveig afrekaði að taka þátt í hæfileikakeppni skólans, sem var mjög gaman.  Hún samdi dans ásamt þremur bekkjarsystkinum sínum og þetta gekk mjög vel hjá þeim.   Þau höfðu mjög gaman að þessu og eru strax farin að spá í hæfileikakeppni næsta árs og það eru ýmsar hugmyndir á teikniborðinu.  Hún sagði mér um daginn að hún væri ekki viss hvort hún ætlaði að syngja dúett með Amöndu eða sýna knatttækni með Elíasi, verður spennandi að sjá.

Við höfum allavega gaman að því hvað henni virðist finnast gaman að koma fram.  Þegar við fórum á jólaball Íslendingafélagsins fengum við blað með okkur heim með nokkrum íslenskum jólalögum.  Sólveig var næstu daga á eftir sísyngjandi “Bjart er yfir Betlehem” og einn daginn sagði hún mér að henni finndist þetta svo æðislegt lag að hún ætlaði að syngja það fyrir bekkinn.   Ég sagði bara já og spáði svo ekki meira í það.   Nokkrum dögum seinna hitti ég svo kennarann hennar sem tjáði mér að Sólveig hefði sungið fyrir þau jólalag á íslensku og staðið sig svakalega vel.

Um daginn fórum við á bókasafnið og sóttum kennslubók á blokkflautu og hún er aðeins byrjuð að leika sér að spila.  Ég er mjög svo strangi kennarinn hennar og það hefur bara gengið vel.  Þegar við vorum búnar að taka tvær kennslustundir á flautuna kom hún heim úr skólanum og sagðist hafa fengið leyfi hjá kennaranum til að koma með flautuna í skólann og spila tvö lög fyrir bekkinn.  Mér leist nú ekkert á þessa hugmynd fyrst en var ekkert að draga úr henni og hún æfði tvö lög og spilaði þau fyrir bekkinn og gekk bara vel.

Um daginn átti svo besta vinkona hennar í bekknum afmæli og Sólveig tók íslensku söngbókina með sér og söng Frjálst er í fjallasal fyrir hana og bekkinn.  Af því tilefni komumst við jafnframt að því að það er ekki íslenskt lag (frekar en önnur).

Categories: Fréttir

Gleðilegir Óskar

mars 31, 2013 1 comment

20130331-080439.jpg

Categories: Uncategorized

Jólin 2012

janúar 1, 2013 2 ummæli

Hjá Svíunum byrja jólin með Luciu hátíðarhöldum, það hittist reyndar þannig á að það var lítið um að vera hjá okkar börnum þennan dag. Í skólanum hjá Sólveigu sá annar árgangur um skemmtiatriðin þannig að þau voru áhorfendur og þurftu ekki að klæða sig upp. Það sama var upp á teningnum hjá Pétri, hans deild fór að horfa á börn af annarri deild syngja. Sá eini sem fékk smá Luciuskemmtun var Óskar Hermann, á deildinni hans í leikskólanum var foreldrum, systkinum og öðrum sem vildu koma boðið á söngskemmtun og kaffiboð. Það var mjög gaman, allir sátu á gólfinu í einu af leikherbergjunum og sungu saman.

Untitled

Desember einkenndist annars af mikilli snjókomu, það snjóaði nánast daglega og ekki hægt að segja annað en að jólin hafi verið eins hvít og þau geta orðið. Snjólagið í garðinum hjá okkur var örugglega að nálgast meter og við ferðuðumst um með krakkana á snjóþotum.

Jólafríið byrjaði 21. des, þá voru formleg skólaslit hjá Sólveigu. Farið var í tónlistarhús í nágrenni skólans og þar sungu 4 árgangar lög fyrir foreldra og systkini. Svo voru ræðuhöld og önninni formlega slitið, mjög flott allt saman. Síðasti vinnudagur Óskars fyrir jólafrí var líka 21. des. Við ákváðum að leigja okkur bíl yfir hátíðarnar og sóttum hann þennan föstudagsmorgun. Þann 22. des brunuðu Óskar og Solla svo út á flugvöll og sóttu ömmu Björgu og afa Þórð, þau voru hjá okkur fram til 28. des. Það var mjög gaman að fá gesti og mikill lúxus að hafa aukamannskap til að leika við börnin, það voru ófáar ferðirnar út í snjóinn að leika og margar ferðir farnar niður Moränvägen á snjóþotum. Á Aðfangadag eldaði amma Björg svo kalkún og tilbehör og bjó til súkkulaðimús í eftirmat. Eftir mat og pakkaopnun tókum við svo sænsku jólin með trompi og dönsuðum m.a. “Nu er det jul igen” um efri hæðina.

Aðfangadagur 2012

Á annan í jólum var komið að langþráðu foreldrafríi okkar Óskars. Við fórum til Uppsala, gistum á Radisson hótelinu sem við gistum á í sumar. Mjög fínt mini-frí hjá okkur, gengum mjög mikið, borðuðum góðan mat og hvíldum okkur. Kíktum svo aðeins á útsölurnar áður en við brunuðum aftur til Stokkhólms. Kíktum m.a. í IKEA sem er nauðsyn í rómantískum ferðum.

Jól og áramót 2012

 

Á áramótunum vorum við fjölskyldan bara í rólegheitum, elduðum þessa fínu sænsku jólaskinku sem var algert lostæti.  Um kvöldið var verið að skjóta upp einum og einum flugeld í nágrenninu, mjög rólegt.  Við sögðum Sollu að það væri örugglega ekkert skotið mikið upp í Svíþjóð þannig að henni væri alveg óhætt að fara bara að sofa klukkan 11.  á miðnætti þegar við Óskar sátum svo yfir skaupinu varð hins vegar allt brjálað úti, skotið upp flugeldum eins og á Íslandi en það stóð hins vegar ekki lengi yfir, menn fagna greinilega bara nýja árinu um leið og það “dettur inn”.  Börnin sváfu þetta hins vegar af sér.

Síðustu daga höfum við svo verið að koma okkur rólega aftur í rútínuna, Pétur fór á leikskólann á miðvikudag og fimmtudag og Sólveig í fritids á fimmtudag og föstudag.  Pétur og Óskar H fara svo báðir í leikskólann á mánudaginn og Óskar fer þá líka aftur í vinnuna.  Sólveig byrjar svo í skólanum á þriðjudaginn.

Categories: Fréttir

Á jólaballi

desember 17, 2012 Skrá ummæli

Á sunnudaginn fór Beggó með Sólveigu og Pétur á jólaball Íslendingafélagsins í Stokkhólmi.  Það var ágætis skemmtun, dansað í kringum jólatré, sungið saman, flott kaffihlaðborð og fullt krökkum að leika við.   Hápunkturinn var svo þegar jólasveinar komu og gáfu öllum krökkunum pakka.  Mín börn fengu nýjar húfur og voru alsæl.

Hér fylgir smá myndband sem sýnir vel muninn á börnunum mínum,

Categories: Fréttir

Stóru börnin

desember 13, 2012 1 comment

20121213-161300.jpg

Hér er staðfesting á mínútunni á þessu ári þar sem systkinin sátu að spila

Categories: Uncategorized

Leikskólastrákur

nóvember 27, 2012 2 ummæli

Óskar Hermann hefur nú klárað aðlögunina á leikskólanum og er nú fullburða leikskóladrengur.    Aðlögunin fer þannig fram að ég er með honum í þrjá heila daga og svo er hann einn í hálfan dag.   Þetta gekk allt mjög vel, ég átti von á að hann myndi hanga í mér og vera feiminn en svo var ekki.

Leikskólinn er mjög góður og mjög margt í boði, dagurinn byrjar á því að börnin eru úti að leika, það finnst Óskari nú ekki leiðinlegt, hann hefur mikinn áhuga á því að labba um og skoða hluti.  Eftir útiveruna er farið inn og deildin hans er algert ævintýraland.  Hér fyrir neðan má t.d. sjá tvennt af því sem hægt er að gera inni, annars vegar buslsvæðið og hins vegar sandsvæðið.

Untitled

Untitled

Í matartímanum er lögð áhersla á að börnin geri allt sjálf, þegar þau koma inn í matsalinn er lítið borð með glösum og hnífapörum og hvert barn tekur eitt glas og fer og finnur sér sæti.  Maturinn er svo á öðru borði og allir sækja sér sjálfir.  Eins og menn geta ímyndað sér er útlitið á matsalnum eftir matinn ekki mjög glæsilegt, en það er magnað að sjá litlu börnin sem eru búin að ná þessu vel.  Aldursbilið á deildinni er 1-3 ár, flestir eru í kringum 2ja ára, Óskar Hermann næst yngstur.
Matartími

Eftir matinn er farið að sofa, Óskar Hermann var ekki á því að sofa með hópnum þannig að ég fór með hann út í vagn og hann svaf þar.  Síðasta daginn sofnaði hann í vagninum inni og á morgun á að reyna að svæfa hann inni, án mín.    Þegar börnin vakna er svo frjáls leikur inni, þá má busla, leika í sandi, föndra, skoða bækur, púsla, kubba, leika í ipad eða hlusta á tónlist og dansa, semsagt nóg í boði.

Í dag var Óskar Hermann svo skilinn eftir einn í þrjá tíma og gekk það vel.  Hann tók varla eftir því þegar ég fór, enda upptekinn að leika sér úti.  Þegar hann kom inn settist hann í fangið á einni fóstrunni og steinsofnaði þar, vaknaði svo og fékk að borða.  Þegar ég sótti hann svo sat hann einn í matsalnum og borðaði og varð vægast sagt mjög hissa á að sjá mig.

Þegar Óskar byrjaði á leikskólanum var Pétur færður upp um deild og það gekk líka mjög vel.  Þetta átti að gerast rólega, klukkutími á dag til að byrja með en hann var heilan dag frá fyrsta degi, þurfti enga aðlögun.  Þeir bræður náðu að leika sér saman úti einn dag á leikskólanum, en þessa vikuna hefur Pétur svo verið lasinn heima.

Categories: Fréttir

Tölvunördar

nóvember 19, 2012 Skrá ummæli

Litlu bræðurnir liggja inni í rúmi og eiga að fara að sofa, Sólveig fær að vera frammi að horfa á sjónvarpið.
Sólveig: Pabbi, hvernig verður veðrið á morgun?
Óskar: Solla mín, ekki æpa.
Þá heyrist í Pétri innan úr rúmi “Pétur líka ipad!”

Categories: Uncategorized

Stórir strákar

október 30, 2012 Skrá ummæli

Nú styttist í að Óskar Hermann byrji í aðlögun á leikskólanum hjá Pétri.  Ég á von á því að þeir verði saman á deild til að byrja með, en þar sem Pétur er víst svo bráðþroska að þá getur verið að hann verði færður upp um deild fljótlega.

Nýjasta afrek Pétur er að vera hættur alveg með bleyju, við prófuðum eina helgi um daginn þar sem hann var bleyjulaus og það gekk nokkuð vel.  Á mánudeginum þegar ég var að klæða hann fyrir leikskólann harðneitaði hann alveg að fá bleyju, þannig að til að koma honum á leikskólann þann daginn varð ég bara að gefast upp og pakkaði niður slatta af nærfötum og buxum og sendi með honum.  Þegar ég sótti hann svo var hann enn í sömu fötunum þannig að þetta gekk vonum framar og starfsfólk leikskólans ánægt með hann, þar sem hann er fyrstur á deildinni til að hætta.

Í dag fór Pétur svo í fyrsta skipti til tannlæknis.  Við Óskar vorum búin að ímynda okkur að annaðhvort myndi hann harðneita að opna munninn eða opna munninn rétt svo til að bíta tannlækninn.  Ég ákvað allavega að taka leigubíl þannig að ég væri með bílstólinn hans Óskars og gæti haft hann þar á meðan ég héldi Pétri niðri og leyfði tannlækninum að skoða hann.    Það er ekki hægt að segja annað en að Pétur hafi komið stórkostlega á óvart í þessari ferð, hann gerði allt sem hann var beðinn um og galopnaði svo munninn og leyfði tannlækninum og pota að vild í tennurnar.  Þegar það átti svo að skoða bitið hjá honum varð smá vesen að fá hann til að loka munninum, hann sat í stólnum með galopinn munn og galopin augu.  Tannlæknirinn bað hann að loka munninum (á sænsku) og ég sagði honum á íslensku, en hann var í einhverjum öðrum heimi, þannig að þetta tók smá tíma.  Hann var svo leystur út með verðlaunum og alsæll.

Óskar Hermann er alltaf að stækka, það nýjasta hjá honum er að klifra upp á allt, kíkja og róta í öllum skápum og skúffum og að hlaupa hér um allt.   Þetta hefur valdið tíðum byltum og veltum og er ennið á honum orðið ansi skrautlegt.   Okkur finnst hann vera allt of mikið baby til að fara á leikskóla, en þetta mun fara rólega af stað þannig að við fáum tíma til að venjast þessu.

 

Categories: Fréttir
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.